Jónsi í baunaveldi
Bolti
Vinna
09.06.2007 14:15:28 / joneiriks

Ný síða

Kominn með nýja síðu á:

http://jonsinn.blog.is


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 01:06:13 / joneiriks

Þá er það blogg

Djöfull er ég að verða pirraður á þessu stjórnmálaþvaðri. Ekki að ég hafi ekki áhuga á málefnalegri pólitík, það eru frekar brosandi stjórnmálamenn tyggjandi á einhverjum lummum eins og “árangur áfram, ekkert stopp” sem framkallar aulahrollinn hjá mér þessa dagana. Sándar meira eins og dauðakippir frá bændaflokknum. Annars er ég líka búinn að fá nóg að umræðum um náttúru Íslands eins og það sé eina helvítis kosningamálið. Að sjálfssögðu er allt í lagi að tala aðeins um þau mál en að eyða hverjum einasta umræðuþætti í það er einum of. Þessi grey sem eru að reyna komast í stjórn ættu kannski að reyna að hamra aðeins meira á efnahagsmálunum eins og vöxtum, verðbólgu og verðtryggingum. Hey, bara kominn með nýtt slagorð sem Ómar þarf ekki að stela og gæti þulið í bundnu og óbundnu máli, bakfallandi úr pontu á Alþingi ef hann vissi að það væru til fleiri kosningamál en sjálfbær náttúruþróun (hvað sem það nú er).

 

Að öðrum málum þá fékk ég olnboga í kjálkann í fótbolta um daginn og það brotnaði upp einhverjum 6-7 tönnum. Það var ekki gott en það hefur skánað nokkuð og vil ég ekki þakka tannlækninum sem ég borgaði 17.000 kr. fyrir að sjúga munnvatn úr mér í 45 mín daginn eftir. Sé það núna að ég hefði átt að verða tannlæknir eða forstjóri Glitnis. Annars má maður ekki gleyma því að margur verður af aurum api.

-je

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.03.2007 19:45:26 / joneiriks

Nýr klúbbur

Eins og allir vita gekk ég nýverið til liðs við stórveldið KV úr Vesturbænum. Það hefur bara gengið vel og höfum við tekið tvo fyrstu leiki í deildarbikar létt. Ég er búin að sementa hægri bakvarðarstöðuna og Gaz Neville myndi roðna við hliðina á mér. Í vikunni var ég tekinn á teppið og sýndi á mér hina hliðina á heimasíðu klúbbsins sem má sjá HÉR.

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.03.2007 00:35:00 / joneiriks

í vestanblænum

Ætli það sé ekki kominn tími á blogg enda allt að gerast í hinum veðurbarna vesturbæ. Það er kannski ekki svo vont veður hérna enda er maður bara góðu vanur eftir uppvöxtinn á hornafirði en þar flýtir lognið sér hægt. Annars er maður bara búinn að koma sér vel fyrir í vinnunni eins og sést hér (tjékkið á myndarlega manninum næstneðst á síðunni) og allt gengur bara vel. Við í Völku þróum semsagt hugbúnað og vélbúnað í fiskvinnslu. Ég er mest í vélbúnaðarhönnun enda hugbúnaður bara fyrir nirði eins og þessa. Annars eru verkefnin samt mörg og mismunandi og er ég einmitt að mastera hönnunarforritið Solid Works þessa stundina. Einnig er ég byrjaður í bolta með stórveldi vesturbæjar KV. Fyrir þá fáu sem vita ekki hvað það er þá er KV skammstöfun fyrir Knattspyrnufélag Vesturbæjar sem er einskonar mótvægi við stríbótta liðið í hverfinu. Við spilum í 3. deildinni í sumar og erum pottþéttir á að spila í 2. deildinni þarnæsta sumar.

-je


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.03.2007 15:53:48 / joneiriks

Mér líður svo vel

Ef ég væri ekki þunnur myndi ég hoppa af gleði


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.02.2007 22:54:46 / joneiriks

Allt að verða klárt

Það er nú aldeilis best að blogga áður en Boten AnnaLind tekur tryllinginn. Ástæða þess að lítið hefur verið um blogg er annars bara nettengingar- og tölvuleysi sem hefur nú loksins reddast. Draslið mitt frá Dammó kom loks í hús á föstudag. Þar var fátt um fína drætti fyrir utan svaðalegt
37" Samsung LCD sjónvarp sem lýsir nú upp drungalegt skammdegið með yndisfögrum ljóma sínum hér á Flyðrugrandanum. Ég læt fylgja eina mynda af gripnum og stoltum eiganda.

Annars vil ég senda afmæliskveðju til Krumma litla bró sem er 18 í dag. Man vel þennan dag fyrir 18 árum þegar íslendingar unnu einhvern glæstan sigur í b-keppninn í handbolta og hlustaði ég á lokamínúturnar í skólabílnum á leiðinni heim úr skólanum. En sá sigur gleymdist þegar ég kom heim og frétti að mamma væri farin á fæðingardeildina. Seinna um daginn sá ég síðan guttann sem var myndarlegur en hefur þó ætíð aðeins náð mér í kné í þeirri deildinni.    

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.01.2007 22:39:01 / joneiriks

Vinnan byrjuð

Þá er maður bara kominn til Íslands aftur og byrjaður að vinna. Fyrsti vinnudagurinn var í dag upp í Völku (www.valka.is) og var það bara fínt. Þetta er lítið fyrirtæki upp Lindahverfi sem þróar fiskvinnsluútbúnað. Fyrsta verkefnið mitt snýst um að hanna griparm á róbot til að raða fiskflökum án manneskjulegrar íhlutunar, þ.e. útrýming af leiðindadjobbi sem íslendingar nenna hvors sem er ekki að vinna.

Annars erum við Hrund að fara flytja inn íbúðina á Flyðrugranda um næstu helgi um leið og við hrekjum tengdó út. Draslið mitt er reyndar ennþá í Dammó en er að fara í gám á morgun ásamt nýja úberdúber flotta 37" LCD Samsung TV-inu okkar :haha:

-je    


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.01.2007 23:09:06 / joneiriks

Próf búin

Þá eru prófin bara búin. Gekk fínt í glussanum í gær og er ég bara þokkalega sáttur. Auðvitað ekki búin að fá úr neina ennþá. Flýg heim á föstudaginn kemur og fer beint austur. Svo ef einhver veit um laust far má sá hinn sami hafa samband í emilinn joneiriks@hotmail.com.

-je


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.01.2007 20:54:41 / joneiriks

Prófaógleði

Þá eru jólin búin og maður bara aftur kominn til Danmerkur til að þreyta próf. Jólin voru fín að vanda, bara étið, horft á enska boltann og hangið í heita pottinum á Hólabrautinni. Fór líka í aðfangadagsbolta með drengunum og kíkti aðeins á 16 ára ball í Sindrabæ. Var í bænum um áramótin og kíktum við Hrund upp í Öskjuhlíð til að sjá flugeldana á gamlárskvöld. Þar var varla þverfótað fyrir túrhestum en annars var það fínt enda veðrið gott. Flaug síðan út 1. og fór í skelfilega erfitt próf á föstudaginn. Vonandi að það fari betur en ég held en annars þýðir ekki að væla yfir því strax. Fer síðan í eitt annað 15. jan og á þá bara eftir að ganga frá mínu drasli hér, kaupa TV og henda mér heim aftur. 

Ég og Gunni örvhenti endurnýjuðum kynnin á annan

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 17:44:35 / joneiriks

Jólafrí eða þannig

Jæja, þá er maður kominn heim í jólafrí. Verð reyndar að læra slatta um jólin enda eitt stykki killer próf í Styring og regulering 5. jan. 2007, kl. 0900. Er í bænum núna í góðu yfirlæti hjá Hrund og tengdó og fer austur eftir nokkra daga. Annars erum við búin að redda okkur íbúð þegar ég kem heim eftir próf. Þannig er það nefnilega að tengdó ætlar flytja í sveitina og ég og Hrund leigjum af henni íbúðina hennar sem er við hliðiná KR vellinum. Svo það er ekki ólíklegt að maður gangi til liðs við stórveldið í vesturbænum, Gróttu og reyni kannski að komast í einhvern bolta.

Jólakveðja Jónsi 


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.11.2006 01:05:26 / joneiriks

Kominn með vinnu!!!

Jæja, þá er maður loksins kominn með vinnu heima á Íslandi. Það er nefnilega þannig að á næstu önn á ég að fara í praktik þ.e.a.s. vinna sem tæknifræðingur hjá einhverju fyrirtæki. Ég er semsagt kominn inn hjá fyrirtæki sem heitir Valka (www.valka.is). Það er lítið fyrirtæki í Kópavogi sem þróar framleiðslulausnir fyrir fiskiðnaðinn, þ.e. færibönd, vigtar, pökkunargræjur osfrv. Mér líst bara helvíti vel á þetta og hlakka til að byrja 1. feb. Enn fyrir þann tíma þarf maður að klára prófin í janúar. Fer í eitt helvíti hardcore próf þann 5. jan. og annað litlu skárra 15. jan. Síðan er það bara að pakka búslóðinni í svona tvo kassa (búinn að selja mest allt) og flytja heim. Ég og Hrund erum byrjuð að leita eftir íbúð á Stór-Reykjavíkur svæðinu og erum að hugsa um að leigja fyrst um sinn enda íbúðaverð ekki á neinn hátt eðlilegt í Borg óttans þessa stundina.

Annars er ég búinn að panta far heim um jólin. Kem til landsins 15. des. og fer út 1. jan. Verð eitthvað að þvælingi milli Hafnar og Rvk. að vanda og hlakka ekki lítið til að koma heim í kuldann.
-je

» 3 hafa sagt sína skoðun

19.11.2006 00:13:52 / joneiriks

Mannlegt skammhlaup í rafmagnsdeildinni

Það raskaðist aldeilis róin í rafmagnsdeild Teknikum í seinustu viku. Einhver gaur var nefnilega rekinn úr skólanum á máudaginn sl. fyrir almenna leti og kjaftbrúk. Hann mætti síðan allhress í skólann á miðvikudaginn og gekk beint inn á skriftstofu kennara og hótaði að drepa þá alla. Hann var ekki alveg búinn því hann mætti síðan grúppufélaga sínum fv. og reifst við hann áður an hann tók skæri upp úr vasanum og stakk hann 6 sinnum í andlit, bak og axlir. Gaurinn slapp nú samt furðu vel og leit við í skólann næsta dag. Sá blóðheiti situr nú í 4 vikna gæsluvarðhaldi og má búast við 6 ára fangelsi fyrir manndrápstilraun. Einn starfsmaður skólans fékk taugaáfall.  Læt eina mynd af vettfangi fylgja.
-je


» 7 hafa sagt sína skoðun

06.11.2006 17:14:00 / joneiriks

Sameinaðir Mannshestar

Nú er löngu kominn tími á eina færslu. Fór í seinustu viku til Köben til að horfa mína heittelskuðu man utd menn etja kappi  FCK í meistaradeildinni. Skemmst er frá því að segja að mínir menn drulluðu upp á bak og baunarnir unnnu. Það var auðvitað týpískt að þeir gátu ekki neitt einmitt þegar ég ákvað að láta loksins sjá mig á alvöru leik. Annars var ferðin fín og það er óhætt er að segja að stemmning hafi verið góð í Parken. Danirnir eru að sjálfsögðu við það að missa saur úr gleði og sumir hafa líkt þessu við sigurinn 1992 (þeir sem vita ekki hvað danir unnu 1992 fá ekki landvistarleyfi í Danmörku). Það finnst mér nú einum of enda var þetta að sjálfsögðu hálfgert varalið United og leikurinn var spilaður á ónýtu grasi eins og Sir Ferguson benti réttilega á að leik loknum.
-je


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 21:24:15 / joneiriks

Heim á klakann

Nú er bara að fara koma haustfrí hérna í Dammó og ætla ég að kíkja aðeins heim þá. Flýg á næsta föstudag og ætla að stoppa í rúma viku. Ætla aðeins að tjékka á lifnaðinum hjá Hrund á Laugarvatni og sé til hvort maður kemst ekki eitthvað austur á Höbbn líka. Annars er ég búin að redda nokkrum vinnuviðtölum fyrir praktikina. Fer í viðtal hjá vgk.is, valka.is og star-oddi.com. Allt spennandi fyrirtæki og það verður gaman að sjá hvort maður fái eitthvað að gera.
-je

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.09.2006 20:21:14 / joneiriks

Skóli og bolti

Það er allt meinhægt hérna í DK. Skólinn kominn á fullt og er maður í fyrsta skipti laus við hópverkefnavinnu. Núna tek ég nefnilega bara fög og það ætti ekki að vera sama stressið í lok annar og hefur alltaf verið með þessi verkefni. Ég er byrjaður að sækja um starfsþjálfun á Íslandi sem ég á að fara í á næstu önn. Búinn að sækja um hjá Marel og nokkrum fleirum og vona að það geti verið klappað og klárt sem fyrst. Er búinn að panta flug heim í október og verð á klakanum í 9 daga. Vonandi get ég farið í viðtöl hjá einhverjum fyrirtækjum þá auk þess að kíkja aðeins á hana Hrundslu mína.

Annars fer tímabilið í boltanum að taka enda. Við í Ísafold FC eigum 4 leiki eftir í deildinni og siglum þar lygnan sjó um miðja deild. Á þessu tímabili hef ég verið að þjálfa liðið ásamt einum öðrum og hefur það verið þrælgaman og lærdómsríkt. Í dag unnum við glæstan sigur á efsta liðinu sem var alger snilld. Við fórum á Klakamótið (fótboltamót íslenskra karlmanna í Danmörku) um daginn í Köben og var það að vanda gargandi eðalmót. Við lentum í þriðja sæti en það er nú bara útaf því að lið í 1. og 2. voru bara pappakassar sem fóru að sofa kl. 22. EN það gerði okkar lið sko ekki enda verða einhverjir að halda uppi merkjum íslenskra karlmanna í DK. Já, sögurnar voru margar og sumar bannaðar börnum en allir komust þó heilir heim. Læt fylgja eina eðal mynd af mér vera að spyrna knetti alveg eins og Beckham. 

-je

 

 




» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10